papco.is

PAPCO er íslenskt framleiðslufyrirtæki sem var stofnað árið 1983. Hjá PAPCO starfa um 30 manns við framleiðslu, sölu og þjónustu á hreinlætispappír og

Umhverfisstefna PAPCO

PAPCO er íslenskt framleiðslufyrirtæki sem var stofnað árið 1983. Hjá PAPCO starfa um 30 manns við framleiðslu, sölu og þjónustu á hreinlætispappír og hreinsiefnum.

PAPCO tekur tillit til umhverfismála í allri sinni starfsemi og tryggir að öllum lagalegum kröfum á sviði umhverfismála sé fullnægt. PAPCO leitast við að lágmarka umhverfisáhrif starfsemi sinnar og leggur mikla áherslu á sjálfbæra þróun.

Hráefnið sem PAPCO notar til framleiðslu er vottað með viðurkenndum umhverfismerkjum frá birgjum. Má nefna vottanir eins og Evrópublómið og FSC sem staðfesta að hráefnið kemur frá nytjaskógum og trjáræktarbúum þar sem 10 trjám er plantað fyrir hvert tré sem fellt er. PAPCO hefur enn fremur lagt inn umsókn til Umhverfisstofnunar um aðild að umhverfismerkinu Hvíta svaninum sem er eitt mikilvægasta og áreiðanlegasta umhverfismerkið á Norðurlöndum.

Engin kemísk efni eru notuð í framleiðsluferli PAPCO og allur ónothæfur pappír sem fellur til við framleiðsluna er sendur úr landi til endurvinnslu.

PAPCO vinnur að stöðugum umbótum í umhverfismálum sínum og endurskoðar umhverfisstefnu sína reglulega ásamt því að stuðla að hæfni og þekkingu starfsmanna til að framfylgja settri stefnu.

Veldu vöru»

Tilboð»

Svæði

Framsetning efnis

Papco | Stórhöfða 42 | 110 Reykjavík | Sími 587 7788 | Fax 587 7787
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf