Papco hefur í áraraðir tekið þátt í fjáröflunum með íþróttafélögum, skólum og félagasamtökum. Nýlega fór fyrirtækið að bjóða fleiri vörur fyrir heimilið en pappír til fjáröflunar. Auknu vöruvali var strax tekið fagnandi og eru flestir sammála um að fjáraflanir séu nú fjölbreyttari og skemmtilegri en áður.
Hafðu samband við söludeild Papco í síma 587 7788 eða með netpósti til gudmundur@papco.is og við hjálpum
þínum hóp að efla félagsstarfið.

