miðvikudagur 13.apríl 2011

Myndatexti: Hafberg Svansson, umsjónarmaður fasteigna VMA, Fannar Ásgeirsson, svæðisstjóri Papco á Akureyri, og Hjalti Jón Sveinsson skólameistari VMA, við undirritun samningsins.
Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur gert tveggja ára samning við Papco um kaup á hreinlætisvörum og hreinlætispapppír til skólans.
Papco er leiðandi fyrirtæki á sviði pappírsframleiðslu hér á landi og framleiðir á annað þúsund tonn af
hreinlætispappír á ári.
Papco hefur aukið umsvif sín á stórnotendamarkaði og bætt vöruvalið til að mæta þörfum viðskiptavina sinna. Ríkiskaup
gerði á dögunum tveggja ára samning við íslenska pappírsframleiðandann um kaup á fleiri hundruð tonnum af hreinlætispappír til
stofnana og sveitarfélaga.
Papco opnaði nýverið verslun og söluskrifstofu á Akureyri og jók með því þjónustustigið til muna. Meðal stórra
viðskiptavina Papco eru Menntaskólinn á Akureyri og Skautafélag Akureyrar sem rekur skautahöllina í bænum.
„Markmiðið með opnun verslunar og söluskrifstofu á Akureyri er að sinna betur fyrirtækjum um allt Norðurland sem eru í viðskiptum við
okkur. Það hefur fallið í mjög góðan jarðveg og þessi samningur við Verkmenntaskólann er ákveðin viðurkenning fyrir Papco og
starf fyrirtækisins fyrir norðan,“ segir Þórður Kárason, framkvæmdastjóri Papco.
„Við höfum kappkostað að lækka rekstrarkostnað fyrirtækja og stofnana sem eru í viðskiptum við okkur með því að
bjóða ávallt mikil gæði en lágt verð,“ segir Þórður ennfremur.

