Reykjavíkurborg og Akureyrarbær gera tugmilljóna samning við Papco
Reykjavíkurborg og Akureyrarbær hafa, með stuttu millibili,
gert samkomulag við íslenska pappírsframleiðandann Papco
um að sinna öllum þörfum þessara sveitarfélaga í
klósettpappír, eldhúspappír og þurrkum ýmis konar.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Papco
Samningarnir eru til tveggja ára og líklegt verðmæti hleypur á
tugum milljóna króna.
Samtals nota þessar tvær sveitastjórnir og stofnanir þeirra tugi
tonna af pappír árlega.
Íslensk pappírsframleiðsla skapar störf og sparar umhverfið. Með því að flytja pappír til landsins í hráu formi og vinna úr honum hér sparast umtalsverður kostnaður við flutning. Einnig ýtir framleiðslan undir innlenda atvinnusköpun, að fullvinna sem flestar neytendavörur hér á landi. Að lokum má benda á að Íslendingar valda síður útblæstri gróðurhúsalofttegunda með því að kaupa innlendan heimilispappír.
Skip sem flytja í gámum til landsins fullunninn pappír í neytendaumbúðum valda óþarfri mengun á umhverfi jarðarinnar. Með aukinni reynslu og betri tæknibúnaði hefur innlend framleiðsla á undanförnum árum svo til náð að ýta erlendum vörumerkjum úr hillum stórmarkaðanna.

