miðvikudagur 23.mars 2011

„Það er ánægjuefni að íslenskt framleiðslufyrirtæki hafi verið valið í þessu stóra útboði sem styrkir
vissulega íslenskan iðnað. Innlend pappírsframleiðsla skapar fleiri störf og meiri gjaldeyristekjur sem er auðvitað mjög jákvætt fyrir
íslenska hagkerfið,“ segir Þórður Kárason, framkvæmdastjóri Papco.
„Papco hefur undanfarin tvö ár séð ríkisstofnunum og sveitarfélögum fyrir hreinlætispappír og ég er mjög
ánægður með að þessir aðilar vilji vera áfram meðal viðskiptavina okkar. Við höfum kappkostað að lækka rekstrarkostnað
fyrirtækja og stofnana sem eru í viðskiptum við okkur með því að bjóða ávallt mikil gæði en lágt verð,“ segir
Þórður.
Papco er leiðandi fyrirtæki á sviði pappírsframleiðslu hér á landi og framleiðir á annað þúsund tonn af
hreinlætispappír á ári. Fyrirtækið hefur aukið umsvif sín á stórnotendamarkaði og bætt vöruvalið til að mæta
þörfum viðskiptavina sinna. Papco opnaði nýverið verslun og söluskrifstofu á Akureyri og jók með því þjónustustigið
til muna. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru að Stórhöfða 42 í Reykjavík. Um 30 manns starfa hjá fyrirtækinu við
framleiðslu, sölu og þjónustu á hreinlætispappír og hreinsiefnum.

