papco.is

Papco styrkir Fjölskylduhjálpina Styrktarherferðin „Taktu þátt í að gefa gjöf“Nú hefur pappírsframleiðandinn Papco farið af stað með sérstaka

Papco styrkir Fjölskylduhjálpina

Styrktarherferðin „Taktu þátt í að gefa gjöf“
Nú hefur pappírsframleiðandinn Papco farið af stað með sérstaka styrktarherferð undir nafninu „Taktu þátt í að gefa gjöf“. Ein rúlla af hverri seldri pakkningu af hreinlætispappír í jólaumbúðum mun renna til líknarfélaga sem eru með úthlutanir í desember,

 þar með talið til Fjölskylduhjálparinnar sem tekur nú við auknum fjölda aðstoðarbeiðna. Söfnunin stendur út desember. Auk styrktarherferðarinnar hefur Papco aukið enn stuðninginn við Fjölskylduhjálpina með auknu vöruframlagi til samtakanna.

„Í gegnum árin hefur Papco veitt Fjölskylduhjálpinni ómetanlegan stuðning en þeir hafa syrkt samtökin allt frá stofnun fyrirtækisins“, segir Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður Fjölskylduhjálpar Íslands.
Papco er eini íslenski framleiðandinn á hreinlætispappír en undanfarið hefur borið á því að sveitarfélög og stofnanir færi viðskipti sín með hreinlætisvörur frá erlendum vörumerkjum yfir til Papco.

Nánari upplýsingar veita Þórður Kárason, framkvæmdastjóri Papco s: 660-6700 og Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands s: 551-3360.



Veldu vöru»

Tilboð»

Svæði

Framsetning efnis

Papco | Stórhöfða 42 | 110 Reykjavík | Sími 587 7788 | Fax 587 7787
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf