þriðjudagur 20.desember 2011

Mynd: Helen Guðjónsdóttir, formaður unglingaráðs Breiðabliks, Guðmundur Ólafur Hermannsson og Alexander Kárason.
Papco og körfuknattleiksdeild Breiðabliks undirrituðu samstarfssamning í Smáranum í dag. Samningurinn er til tveggja ára og
nær yfir alla flokka körfuknattleiksdeildarinnar.
Helen Guðjónsdóttir formaður unglingaráðs segir samninginn mikilvægan fyrir starfsemi körfuknattleiksdeildarinnar.
,,Við í unglingaráði höfum unnið hörðum höndum við að styrkja innra starf deildarinnar. Nýverið var meistaraflokkur kvenna
endurvakinn eftir 3 ára hlé. Liðið er skipað ungum og efnilegum leikmönnum sem koma ýmist úr yngriflokkastarfi eða hafa gengið til liðs
við félagið til að taka þátt í metnaðarfullu starfi"

