miðvikudagur 15.desember 2010

„Við gerum ráð fyrir að gefa 20 þúsund salernisrúllur til góðgerðarmála og erum þegar búin að afhenta um helminginn. Okkar viðskiptavinir, bæði einstaklingar og fyrirtæki, hafa tekið mjög vel í þessa styrktarherferð og með því að fara þessa leið geta allir lagt sitt af mörkum og gjöfin verður veglegri,“ segir Þórður Kárason, framkvæmdastjóri Papco.
„Papco hefur veitt Fjölskylduhjálpinni ómetanlegan stuðning allt frá stofnun samtakanna fyrir 8 árum. Það er orðið ansi fátt um bjargir hjá mörgum okkar skjólstæðingum fyrir þessi jól,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands. Styrktarherferðin stendur út desember en Papco hefur einnig aukið stuðninginn við Fjölskylduhjálpina enn frekar með auknu vöruframlagi til samtakanna.

