papco.is

Margir tóku þátt í að gefa gjöf Pappírsframleiðandinn Papco efndi í desembermánuði til styrktarverkefnisins „Taktu þátt í að gefa gjöf“ þar

Margir tóku þátt í að gefa gjöf

Jólasveinninn afhendir hreinlætispappír frá Papco
Jólasveinninn afhendir hreinlætispappír frá Papco
Pappírsframleiðandinn Papco efndi í desembermánuði til styrktarverkefnisins „Taktu þátt í að gefa gjöf“ þar sem ein rúlla af hverri seldri pakkningu af hreinlætispappír í jólaumbúðum rann til líknarfélaga sem úthluta nauðsynjavörum til bágstaddra.

Söfnunin gekk vonum framar og pappírinn er nú víðast hvar uppseldur. Þúsundir rúlla af hreinlætispappír hafa í staðinn runnið til heimila með lítil efni í desember. Það voru Mæðrastyrksnefndir um landið, Rauði kross Íslands, Hjálparstofnun Kirkjunnar og Fjölskylduhjálp Íslands sem sáu um að koma hreinlætispappírnum til skila.

Þórður Kárason framkvæmdastjóri Papco:
„Við vorum búnir að ákveða að styðja þessa aðila eins og Fjölskylduhjálpina og Mæðrastyrksnefnd sérstaklega í desember. En með því að fara þessa leið og virkja viðskiptavini okkar til þátttöku í verkefninu þá varð gjöfin mun stærri. Sem betur fer hafa bæði einstaklingar og fyrirtæki verið dugleg að styrkja þessar hjálparstofnanir. Það er eitt hið jákvæða við efnahagshrunið að allir eru tilbúnir að leggja hönd á plóg og hjálpa þeim sem búa við þröngan kost.“



Veldu vöru»

Tilboð»

Þrífur og sótthreinsar hendur, verkfæri og yfirborð. Bakteríudrepandi og því hentugar til þrifa. Sótthreinsa betur en flest fljótandi hreinsiefni. Ekki þarf að nota sápu eða vatn. Þurrkurnar eru frábærar á mælaborðið í bílnum og skilja eftir ferska lykt. Þær eru handhægar á verkstæðinu eða í bílskúrnum. Taka burt erfiða bletti eftir olíu, málningu o.fl. Stærð 20x30 cm og 80 þurrkur í dúnk. Lokið bauknum eftir notkun.

Hafðu samband við sölurágjafa Papco í síma 587 7788

Svæði

Framsetning efnis

Papco | Stórhöfða 42 | 110 Reykjavík | Sími 587 7788 | Fax 587 7787
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf