Papco sem er leiðandi fyrirtæki í hreinlætispappír hefur stutt Hjálparstarf kirkjunnar dyggilega í gegnum tíðina. Mánudaginn 9. mars var
starfmaður Hjálparstarfsins kallaður til bækistöðva Papco að Stórhöfða 42 og sendibíll fylltur af klósettpappír og
eldhúsrúllum til úthlutunar í innanlands aðstoð Hjálparstarfsins. Þetta er stuðningur sem kemur sér mjög vel þegar mikil aukning
er í umsóknum um aðstoð.
Bjarni Gíslason 10/3 2009