papco.is

Fréttablaðið 16/10 '08 Íslenskur lúxuspappír Papco er íslenskt fyrirtæki sem stofnað var árið 1983 og framleiðir meðal annars hreinlætispappír,

Fréttablaðið 16/10 '08

Íslenskur lúxuspappír

Papco er íslenskt fyrirtæki sem stofnað var árið 1983 og framleiðir meðal annars hreinlætispappír, bekkjapappír og servéttur. Eitt er víst, að það er sífellt eftirspurn eftir klósettpappír en hvernig gengur í samkeppni við erlenda aðila?

"Sala hjá okkur hefur aukist undanfarið frekar en hitt. Við erum stórir á neytendamarkaði og framleiðum til dæmis klósettpappír fyrir allar verslanir á Íslandi, þar sem annríki hefur verið undanfarið. Unnið er á vöktum hjá okkur til þess að anna eftirspurn," segir Guðmundur Ólafur Hermannsson, sölufulltrúi fyrirtækjasviðs Papco, og bætir við: "Ég held að á þessum tímum fari fólk að hugsa sig um og velji frekar íslenska framleiðslu. Það eru því spennandi tímar framundan fyrir okkur."

Nýjasta varan frá Papco er séríslenskur hágæðaklósettpappír sem kallast Fífa. "Þessi pappír er fyrsta flokks og er í senn ódýr og notendavænn," segir Guðmundur sannfærandi.

Papco hefur mikið verið í styrktarsölum í því augnamiði að hjálpa skólum og íþróttafélögum að fjármagna ferðalög og útskriftaferðir. Auk þess að selja klósettpappír hefur fyrirtækið sérhæft sig í framleiðslu á eldhúspappír og áprentuðum servíettum fyrir fyrirtæki og veitingastaði. Papco framleiðir einnig hreinsiklúta fyrir bíla, eldhúsrúllur, handþurrkur og fleiri hreinlætisvörur. Nýlega fór Papco að bjóða upp á fleiri vörur til fjáröflunar sem gerir leiðir til fjáröflunar fjölbreyttari en áður.

-ks



Veldu vöru»

Tilboð»

Svæði

Framsetning efnis

Papco | Stórhöfða 42 | 110 Reykjavík | Sími 587 7788 | Fax 587 7787
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf