Á leikskólanum Rauðhóll er börnunum kennt að gera skemmtilegt dót úr hlutum sem venjulega er hent. Starfsfólk leikskólans fékk því þá hugmynd að fá pappahólka frá Papco til að búa til trommur.
Fyrst voru hólkarnir sagaðir niður í passlegar stærðir sem börnin máluðu hvíta. Krakkarnir máluðu þessu næst allskonar munstur á trommurnar sínar. Þegar málningin var orðin þurr var hægt að strekkja skinn á trommurnar.
,,Hljómurinn er rosalega góður í trommunum og eru allir krakkarnir sem og starfsmenn Rauðhóls þakklátir Papco fyrir hólkana"
Takk kærlega fyrir okkur!
Fh. Leikskólans Rauðhóls;
Þráinn Árni Baldvinsson.
Hér er búið að saga hólkana niður.
Ingunn, Lísa Margrét og Orri Hrafn að mála hólkana.
Sölvi Már og Lísa Margrét eru stolt af trommunum sínum.

