papco.is

Papco í samstarf við Breiðablik VMA semur við Papco um kaup á hreinlætispappír Ríkiskaup semja við Papco um kaup á hundruðum tonna af hreinlætispappír

Fréttir

Papco í samstarf við Breiðablik

Mynd: Helen Guðjónsdóttir, formaður unglingaráðs Breiðabliks, Guðmundur Ólafur Hermannsson og Alexander Kárason.
Papco og körfuknattleiksdeild Breiðabliks undirrituðu samstarfssamning í Smáranum í dag. Samningurinn er til tveggja ára og nær yfir alla flokka körfuknattleiksdeildarinnar. 
Lesa meira

VMA semur við Papco um kaup á hreinlætispappír

Myndatexti: Hafberg Svansson, umsjónarmaður fasteigna VMA, Fannar Ásgeirsson, svæðisstjóri Papco á Akureyri, og Hjalti Jón Sveinsson skólameistari VMA, við undirritun samningsins.
Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur gert tveggja ára samning við Papco um kaup á hreinlætisvörum og hreinlætispapppír til skólans. Papco er leiðandi fyrirtæki á sviði pappírsframleiðslu hér á landi og framleiðir á annað þúsund tonn af hreinlætispappír á ári.  Lesa meira

Ríkiskaup semja við Papco um kaup á hundruðum tonna af hreinlætispappír


Ríkiskaup hafa gert áframhaldandi samning við íslenska pappírsframleiðandann Papco um kaup á öllum gerðum hreinlætispappírs fyrir stofnanir og fjölmörg sveitarfélög. Ljóst er að verðmæti samningsins hleypur á tugum milljónum króna en um er að ræða fleiri hundruð tonn af hreinlætispappír. Samningurinn er til tveggja ára með möguleika á framlengingu að þeim tíma liðnum.  Lesa meira

Papco gefur 20 þúsund salernisrúllur
til góðgerðarmála


„Taktu þátt í að gefa gjöf“ er nafnið á styrktarherferð sem Papco, stærsti, íslenski framleiðandinn á hreinlætispappír, stendur fyrir nú í aðdraganda jólanna. Ein rúlla af hverri seldri pakkningu af hreinlætispappír í jólaumbúðum frá Papco rennur til góðgerðarmála. Fyrirtækið styrkir Hjálparstofnun kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd, Rauða krossinn og Fjölskylduhjálpina sem taka nú við auknum fjölda aðstoðarbeiðna fyrir jólin.

Lesa meira

Papco opnar á Akureyri - Frétt af www.vb.is

Starfsmenn Papco í opnunarhófi sem haldið var í nýjum húsakynnum Papco á Akureyri. Frá vinstri: Gunnar Ómarsson, Fannar Ásgeirsson, Ólafur Kárason, Þórður Kárason framkvæmdasjóri og Alexander Kárason.

Papco, stærsta íslenska framleiðslufyrirtækið í hreinlætispappír, hefur opnað verslun og söluskrifstofu í Sjafnarhúsinu á Akureyri. Þrír starfsmenn starfa hjá Papco á Akureyri en í heildina starfa nú um 30 manns hjá fyrirtækinu við framleiðslu, sölu og þjónustu á hreinlætispappír og hreinsefnum.

Lesa meira

Veldu vöru»

Tilboð»

Svæði

Framsetning efnis

Papco | Stórhöfða 42 | 110 Reykjavík | Sími 587 7788 | Fax 587 7787
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf